600 MMA
600 MMA er nýtt bardagaíþróttafélag á Akureyri fyrir fólk sem vill læra Brasílískt Jiu-Jitsu og MMA í öruggu, jákvæðu og vinalegu umhverfi.
Til að byrja með einblínum við á Brasílískt Jiu-Jitsu og Wrestling. Æfingarnar fara einungis fram í No-Gi
( stuttbuxum og bol ). Við æfum eftir CLA aðferðum sem að þýðir að æfingarnar henta jafn vel byrjendum sem og lengra komnum.
Félagið hefur starfsemi sína í september 2026 inn í glæsilegri aðstöðu 600 Klifur á Akureyri.

Engin reynsla nauðsynleg
Byrjendavænt umhverfi
Frábær hreyfing og góður félagsskapur
Verðskrá
Auðvelt að prófa
Komdu og vertu með !
01
Bókaðu prufutíma
Sendu okkur skilaboð eða mættu á staðinn. Við finnum tíma þar sem þú getur komið og prófað án skuldbindingar.
02
Mættu í þægilegum æfingafötum
Íþróttabolur og stuttbuxur duga vel á fyrstu æfingu.
03
Við tökum vel á móti þér
Þjálfari tekur á móti þér, sýnir grunnatriðin og passar að þú vitir hvað er í gangi frá upphafi.
Bóka frían prufutíma
Þjálfarar

Halldór Logi
Halldór Logi hefur æft brasilískt jiu-jitsu frá árinu 2010 og starfað sem þjálfari síðan 2012. Hann hlaut svart belti undir Gunnari Nelson árið 2018 og hefur á þeim tíma byggt upp víðtæka reynslu af bæði þjálfun og keppni.
Halldór hefur keppt reglulega í meira en áratug og hefur á þeim tíma unnið til fjölda Íslandsmeistaratitla í bæði Gi og No-Gi, ásamt verðlaunum á innlendum og alþjóðlegum mótum.
Frá árinu 2012 hefur Halldór þjálfað börn, unglinga og fullorðna. Hann starfaði fyrst sem þjálfari hjá Fenri á Akureyri áður en hann tók við sem yfirþjálfari barna- og unglingastarfs hjá Mjölni.
Samhliða þjálfun hefur Halldór starfað með börnum og ungmennum innan skóla- og velferðarkerfisins frá árinu 2012.

Gunnar Þór
Gunnar hefur yfirgripsmikla reynslu af bardagaíþróttum og hefur bæði æft og þjálfað frá árinu 2005.
Hans helstu sérgreinar eru brasilískt jiu-jitsu (BJJ), þar sem hann er með brúnt belti undir Gunnari Nelson frá 2018, og hnefaleikar, sem hann stundaði af krafti árin 2005–2014. Til viðbótar hefur hann traustan grunn úr MMA og kickboxi.
Gunnar er útskrifaður IAK einkaþjálfari og hefur sótt fjölda sérhæfðra námskeiða tengd þjálfun í gegnum árin. Hann hefur starfað sem lögreglumaður frá árinu 2014 og hefur frá árinu 2016 sinnt valdbeitingarþjálfun fyrir lögregluna og sérsveit ríkislögreglustjóra. Áður en hann gekk í lögregluna starfaði hann sem yfirþjálfari í Mjölni, þar sem hann hafði yfirumsjón með Víkingaþreki, hnefaleikum og Goðafli.
Í þjálfun notast Gunnar helst við svokallað Constraint-Led Approach (CLA), þar sem áhersla er lögð á raunverulegar stöður og leikskilning frekar en einhliða endurtekningar.
Vikutímar
Mánudagur
Þriðjudagur
20:15 - 21:15 Grappling
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Laugardagur
Salurinn er opinn öllum iðkendum fyrir utan skipulagða æfingartíma

Allir velkomnir
Komdu í frían prufutíma. Við tökum vel á móti þér.

